The Tony´s

Lengi lifi Tony

11.12.2006 11:40:31 / tonys

Meistari Joe Sandalo


  "We are in front of the new masterpiece by Mr. Sandalo" -

  Metal Shock

"A very gifted singer" - Metal Shock2


Að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur er orðatiltæki sem Joe nokkur Sandalo lætur sér fátt um finnast. Metnaði hans virðast engin takmörk sett og virðist fátt koma í veg fyrir að enn ein plata frá honum líti dagsins ljós.
Sandalo sem er uppalinn á Ítalíu hefur stundað tónlistarnám allt frá árinu 1989 og hafa menn á borð við Marco Ferri, Mazzotta og Di Masi komið að tónlistarkennslu hans. Di Masi lét seinna þau orð falla að Sandalo hafi verið sinn besti nemandi og segir það sitt um gæði tónlistarkennslunnar.

Sandalo starfar að mestu leiti í aðstöðu sem hann hefur komið upp í herbergi sínu. Þar eyðir hann ófáum stundum í að semja, taka upp og mixa tónlist, enda eru projectin hans orðin svo mörg að það tekur því vart að nefna þau öll.

Joe Sandalo lætur ekki staðar numið við sönginn enda þykir hann afar lunkinn gítarleikari og sparar ekki stóru orðin í þeim málum og lýsir sér sem "Best Italian Guitarist". Þrátt fyrir þau orð, telja þeir sem vel til þekkja í gítarleik að Sandalo hafi ekki sýnt fram á að hann eigi heima í þeim hópi. Til þess að þagga niður í þeim röddum gaf Sandalo út þá yfirlýsingu í Nóvember að nýja platan hans muni innihalda nokkur killer gítar sóló.

Fyrir þá sem þekkja ekki til Sandalo þá er hann hvað þekktastur fyrir ábreiður sínar. Verk frá hljómsveitunum Queen, Dream Theater og Bítlunum hafa fengið nýjan blæ og telja margir þessar ábreiður hans afar athyglisverðar. Svo dæmi sé tekið þá lét einn aðdándi hans þau orð falla að höfundar þessara laga myndu tárast við fyrstu hlustun.

Þrátt fyrir að Sandalo hafi einnig þurft að sæta gagnrýni ýmissa manna sem meta verk hans lítils, lætur hann það engan bilbug á sig fá og heldur hann ótrauður áfram að gera það sem honum er hvað kærast. Metnaður, dugnaður og nægjusemi einkenna Sandalo og hver veit nema hann mun í ókominni framtíðinni spila fyrir fullri Laugardalshöll við mikinn fögnuð viðstaddra.

--- Til þess að nálgast þessi lög þarf að hægrismella og velja Save Target As. --

Queen ábreiður:
Joe Sandalo - Bohamian Rhapsody (Queen Cover)
Joe Sandalo - We Are The Champions (Queen Cover)
Joe Sandalo - Radio Ga Ga (Queen Cover)

Dream Theater ábreiður:
Joe Sandalo - Learning To Live (Dream Theater Cover)
Joe Sandalo - Take The Time (Dream Theater Cover)
Joe Sandalo - Pull Me Under (Dream Theater Cover)

The Beatles ábreiður:
Joe Sandalo - Penny Lane (Beatles Cover)
Joe Sandalo - Let It Be (Beatles Cover)
Joe Sandalo - Yesterday (Beatles Cover)

Fyrir áhugasama sem vilja kynna sér Sandalo betur: www.joesandalo.com


"A very good work, that still needs a careful listening to be appreciated and understood" -
tempi-duri.it


Yfir og út!
P.

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 02:48:02 / tonys

Comback

 

 

andrúmsloftið er rafmagnað Siddi var að yfirgefa félagsheimilið og komu nýjar og skemmtilegar hugmyndir sem skildu mig eftir eins og kind í sláturhúsi bíðandi eftir að vera rotuð. En flest þau orð sem fengu að flakka þar eru allgjörlega í “TOP SECRET”.

             

Jæja ákváðum við að byrja á þessari síðu hérna aftur til að byrja með en við vorum allir í sitthvoru horninu á landinu . Langt er síðan við létum í okkur heyra síðast, en ekki örvænta við erum komnir aftur og munu partyin fljóta með, man einnhver eftir síðasta og fyrsta Tony´s Partyinu, þið sem munið ekki eftir því eða voruð ekki á staðnum þá get ég sagt ykkur það að það var geðveikt. Nýjir meðlimir fara að týnast inn og verður síðan komin á fullt skrið fyrr en varir. Og okkar svið liggja í dshjammi, íþróttum, tónlist, fleiri skemmtilegum hlutum sem vonandi höfða til þín. Síðan er í vinnslu og margt að breytast og Tonys eru komnir aftur. Þangað til næst kv. KB



 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 01:54:26 / tonys

Sumarið

ég vill byrja á því að byðjast afsökunnar á mikilli óvirkni hérna á Tonys en prófin eru búin að ganga yfir og erum við að komast aftur á fullt skrið einnig vill ég byðjast afsökunnar á myndaleysi hérna á síðunni og endilega sendiði inn kvörtun til Sidda hann er maðurinn sem er ábyrgur.

 

 

 

En að öðrum sálmum ég og Kolbeinn skelltum okkur í sund í dag þar sem það er búið að vera CRAZY veður uppá síðkastið en þrátt fyir það var bara frekar fámennt í sundi en þó þá hittum við þá bakkabræður Alex og Ísak úr Njarðlem en þeir voru ferskir eins og ávallt. Alex nýkominn úr ljósum eða já hann er kanski alltaf nýkominn úr ljósum. Síðan var æfing hjá svona 14 ára krökkum í sundi og hef ég aldrei á minni litlu ævi séð eldri mann drulla svoleiðis yfir greyið krakkana og getiði hver það var það var auðvitað enginn annar en hann Kjartan Mársson. En ekki voru bara leiðindi þarna í sundinu því að fengum við að kíkja í nýju innanhússundlauginna og misti Kolbeinn sig þar í leiktækjunum þangað til að hann sá Kjartan koma og varð hræddur en þó að fámennt var í lauginni voru 2 stelpur sem allveg björguðu deiginum já þær voru allveg smoking.

 

 

 

Við Siddi erum gjörsamlega að fríka út af spennu já það er nánast komið að því síðasti þátturinn af Prison Break er næstur sá næst síðasti var rosalegur erum við eins og feitar svertingjakonur í bíói öskrandi á skjáinn svo er innlifunninn mikil.

 

 

 

 

 

 

Fyrir ykkur sem vissuð ekki þá er ég að fara til Hólmavíkur yfir sumarið og belive it or not ég verð þar í allt sumar verð ég að vinna á matsölustaðnum þar sem heitir Cafe Rís og mun ég nota mínu gríðalegu hæfileika í eldhúsinu til þess að verða fyrsti staðurinn á Íslandi með Michelin stjörnu á bakinu. En sumarið verður frekar slappt hjá Tonys ég og Kolli verðum á Hólmavík og mun Kolbeinn sinna sínum störfum þar sem Baywatch(maðurinn er fæddur David Hasselhof) á meðan Hinrik verður í borginni í vinnu hjá Pabba, Siddi og Palli á hinn veginn verða staddir hér í Keflvíkinni og mun Páll halda sínum störfum í Samkaup áfram á meðan Siddi innritar fólk sem er á leiðinni til útlanda. Hvað varðar Hilla sem er væntanlegur meðlimur ef allt gengur að óskum þá verður hann upptekinn að verða Pabbi í allt sumar já til hamingju Hilli með nýja strákinn.

 

 

 

CAFE RÍS

 

 

Og eitt að lokum þá náði ég loksins að opna helvítis háaloftið mitt eða reyndar þá var það ekki ég heldur var það hann Siddi sem náði loksins að draga þessa skrúfu frá helvíti úr háaloftinu en ég er búin að eiga heima hérna í rúm 2 ár og hef aldrei opnað háaloftið sem er staðsett í bílskúrnum og þið munið ekki trúa hvað við fundum þar, en ég ætla samt ekki að segja ykkur það fyrr en ég er búinn að ráða út úr þessu með yfirvöldin því að staðurinn er víst TOP SECRET.

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 18:41:40 / tonys

Fótbolti í kvöld

  Fóboltaveisla verður í kvöld þann 1. maí og er mæting kl. 20:30 úti á Garðskaga.
Verður spilað á allvöru grasi eftir langa bið og kvet ég alla til þess að mæta
     

Og verður stemmingin í hámarki eins og má sjá á þessum myndum.
Kv.KillaBee

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 00:16:34 / tonys

Nýtt mánaðarins !

Jæja, blogg er væntanlegt í hús frá KillaBee nú hvað á hverju skilst mér, svo allir geta farið að hlakka til og spara aurinn sinn fyrir poppi og kók.

En ég ætlaði mér bara að tjá ykkur þær gleðifréttir að The Tony´s hafa valið nýjann einstækling til að ganga í gegnum inntöku-prógram og má sjá hver sá einstæklingur er hér til vinstri á tenglinum "meðlimur í vinnslu".

Einnig höfum við uppfært "mánaðarins" og hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að kíkja á þann einstaklega skemmtilega lið sem hefur farið sigurför um víðann völl.

Hver er: Byttan, Leikmaðurinn, Gjellzið, Beilerinn og Kjötmarkaðurinn ?

Fyrir hönd The Tony´s...

Black Mamba  


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 20:26:01 / tonys

Flott helgi !

Það var sannkölluð upprisu-stemmning í gærkvöldi þegar meðlimir The Tony´s héldu sitt árlega "Upprisu-Partý". Mætingin var með allra besta móti að þessu sinni og mátti sjá aragrúa af partý-þyrstum einstæklingum syngjandi úr sér lungun og drekkandi úr sér lifrina.

Það má vægast segja að fólk hafi skemmt sér vel á öllum aldri og að um friðsamlega samkomu hafi verið að ræða. Þarna mátti sjá spekinga á borð við bguðlaugsson crewið,  sykursnúðinn hann Alla Kalla, kvennfólk utan af landsbyggðini sem að mætti koma oftar til Kef City, körfuboltaleikmenn, fótboltagaurar, grúppíur og fleiri og fleiri.

Einna helst ber að minnast á hápunkt kvöldsins en það var þegar Hinrik Jóhann Óskarsson var vígður inn með glæsibrag. Hinni þurfti að þolast við að ganga undir viðurnefninu "rúnstykki fram að vígslu. Hinni stóðst inntökupróf  The Tony´s, en það er aldrei gefið upp hverju sinni hvernig vígslan er, því um sálfræðilegt ferli er að ræða þar einstæklingurinn sem er verið að taka inn veit oft á tíðum ekki af .

Samkvæmt hefðinni fær Hinni nýtt kenninafn sem lýsir hans innri persónu, nafn sem er hans skírnarnafn innan veggja starfsemis The Tony´s.

Hinni mun bera nafnið: 2Face

 

Hér eru myndir af því helsta sem bar uppá í gær...

Fyrir hönd The Tony´s..

Black Mamba  


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 16:44:36 / tonys

Upprisu-Partý !

Kæru félagar..

Þann 22. apríl n.k. (á laugardaginn) mun The Tony´s gengið halda brjálaðann fögnuð til að halda uppá 3 ára upprisu-afmæli okkar kæra félaga Tony.

Uum er að ræða skemmtun sem mun innihalda mikið af áfengum drykkjum, og verður það aðgöngumiði hvers og eins inn í samkomuna.

Mikilvægt err að muna að Palli a.k.a. Proppé mun gangast undir nafninu Halli allt kvöldið þar sem hann á það til að jinxa flestöll partý þar sem hann mætir í. Höfum við brugðið á það ráð að dulbúa hann sem Halla þetta kvöld í þeirri tilraunastarfsemi að sjá hvort að ekki lukkist betur til.

Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta verða á eilífðarlista félagsins sem félagsskítar og no names.

Dagskrá laugardagsins er svo hljóðandi:

12:00  Meðlimir hittast í félagsheimilinu á Háteignum þar sem skipst verður á handaböndum og faðmlögum í 3 mínútur.

12:03  Lagt verður af stað í Reykjavík þar sem meðal annars verður farið á Ölver til að fylgjast með viðureign Chelsea og Liverpool, kíkt í Kolaportið til að reyna að kaupa fötin hans Kolla til baka, faríð í Hókus Pókus að finna skegg á Palla, og snætt á veitingastað sem meirihluti innsta hrings ákveður.

18:00 Meðlimir mæta aftur í félagsheimilið við Háteig þar sem útileigustemmning verður við lýði með tilheyrandi grillveislu, bjór-sötri, gítarspili og heitum potti.  

21:00 Húsið opnar fyrir partý-þyrst fólk sem kemur í þeim eina tilgangi að skemmta sér langt fram eftir rauðum dauða.

00:00  Hinrik Jóhann Óskarsson verður vígður inn í The Tony´s með pompi og prakt.

Vinir The Tony´s sem vilja samfagna með okkur á þessum merku tímamótum eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér fyrir neðan í komment boxið. :)

Þeir sem hafa boðað komu sína eru meðal annars:

 Black Star Crewið

  Garfield

   President Bush

  Haukur Ægis

   Bobby Fischer (fer með gamanmál)

 Valli

:digilander.libero.it/golemstudio/gallery/ignaziopiacenti/Judas-mostro01.jpg">   Júdas (betur þekktur sem Erlingur)

ásamt öðrum góðum.. :D

Kv. Black Mamba      


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 01:55:11 / tonys

Kæru Skoðendur

Sæl veriði. Ég vildi bara minna ykkur á að skrifa í gestabókina.
En annars þá er helgin framundan og eru stórir hlutir í væntum. Þetta er síðasta djammið þangað til allir fara að sökkva sér í lærdóminn prófin eru á næsta leyti þannig að góðir lesendur drullist til að taka upp bjórinn. Persónulega verð ég(Arnór) einn heima þannig ef að þið viljið kíkja látið mig vita. Svo ekki sé að minnast á það að Hinni verður tekin inní Tony´s hópinn og verður gert eitthvað skemmtilegt við hann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 23:46:10 / tonys

Upphafið..

Tony komst fyrst á spjöld sögunnar þegar KillaBee fann þetta mjög svo spræka og lífsglaða skordýr á ígulskeraskáp sem var staðsettur FS. Höfðum við félagarnir aldrei séð annað skordýr lýkt því, þannig að við fórum að leita upplýsinga hjá helstu skordýrafræðingum skólans, sem sagt Ægisfeðga, en hún var engu nær, þannig við tókum hann að okkur og nefndum hann Tony.  Tony lifði síðan viðburðaríku lífi eftir það, en því miður lennti hann uppá kant við blökkumanninn Nana sem stundaði Drive By með pöddueitri þegar hann fór í mat. En þrátt fyrir langa og erfiða baráttu við Gangsterana í Black Star þá var það ekki það sem varð honum að bana heldur var það "man on the inside" sem að gerðist Júdas og varð Tony að bana, svo ungum og líklegum til enn fleiri afreka. Erlingur tók hann frá okkur, og er hann nú eini svarni óvinur reglunnar. Ekki er vitað um ástæðu morðsins enn þann dag í dag. Erlingur heldur því fram að um slys hafi verið að ræða, að Tony hafi dottið undir skóinn sinn og kramið sjálfann sig.

Enn er talið líklegt að að Blackstar samsæri hafi verið að ræða, að Erlingur hafi bara verið málaliði í stríðinu gegn Tony. Málið verður alltaf talið sem eitt af þeim stóru í sögunni og flokkast á sama skala og meinta morðið á TuPac Shakur.

Alltaf mun minningin lifa.

Svona hefði Tony litið út í dag, ef hann væri á lífi.

Við sem eftir stöndum í leit okkar að hinu einna sanna líferni, minnumst dáða hans og höldum nafninu hátt á lofti. 

Engann skal skaða starfsemi hópsins, heldur að taka það sér til hliðsjónar að máttur frelsis og liðsanda er eitthvað sem njóta skal til fullnustu.

Þannig hefst sagan..

KillaBee & Black Mamba


» 1 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Áhugaverðar síður
Einkasíður